Hoppa yfir valmynd
25. febrúar 2009 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherrar Norðurlandanna og heimsþekktir fyrirlesarar á hnattvæðingarþingi

Forsætisráðherrar Norðurlandanna, þau Jóhanna Sigurðardóttir, Anders Fogh Rasmussen, Fredrik Reinfeldt, Jens Stoltenberg og Matti Vanhanen munu taka þátt í hnattvæðingarþingi sem haldið verður í Bláa Lóninu 26. og 27. febrúar. Íslendingar eru gestgjafar þingsins þar sem leitast verður við að svara spurningum um áhrif hnattvæðingar og stöðu smærri hagkerfa í ólgjusjó alþjóðlegrar fjármálakreppu.

Auk forsætisráðherranna taka þátt heimsþekktir fyrirlesarar og vel á annað hundrað gestir aðrir, þeirra á meðal sérfræðingar á sviði hagfræði, orku- og loftslagsmála, fulltrúar atvinnulífs, vísindasamfélags og frjálsra félagasamtaka.

Forsætisráðherra mun eiga fundi með starfsbræðrum sínum þar sem meðal annars verður farið yfir þá stöðu sem nú blasir við á Norðurlöndunum og á þeim fundi mun Jóhanna Sigurðardóttir gera öðrum leiðtogum grein fyrir ástandi mála hér á landi. Fjöldi háttsettra embættismanna og erlendir blaða- og fréttamenn munu sömuleiðis sækja þingið og því gefst gott tækifæri til að skýra stöðuna á Íslandi fyrir fjölþættum hópi áhrifamanna.

Markmið þingsins er að skapa lifandi umræðu um stærstu viðfangsefni hnattvæðingarinnar og þá möguleika sem hún skapar. Miðpunktur umræðunnar verður hin alþjóðlega fjármálakreppa og áhrif hennar á stefnu þjóða í loftslagsmálum og nýsköpun. Rástefnugestir munu einnig skiptast á skoðunum um samkeppnishæfni Norðurlandanna í nútíð og framtíð.

Þá verður einnig kynnt Norræn hnattvæðingarvog fyrir árið 2009 (Global Pressure – Nordic Solutions?) og Norrænn nýsköpunarmælir. Höfundur hnattvæðingarvogarinnar er Christian Ketels hagfræðingur sem skrifaði grein undir fyrirsögninni Hvert stefnir þú Ísland? í Morgunblaðið 20. febrúar.

Aðalfyrirlesari hnattvæðingarþingsins er Kenneth S. Rogoff prófessor í hagfræði við Harvard háskóla sem flytur erindi um alþjóðlegu fjármálakreppuna og efnahagshorfur á næstu árum. Aðrir merkir fyrirlesarar eru meðal annarra Curtis Carlsson framkvæmdastjóri hins heimfræga nýsköpunarfyrirtækis SRI International sem flytur erindi undir fyrirsögninni Nýsköpun og samkeppnishæfni þjóða.

Hnattvæðingarþingið er haldið undir forystu Íslendinga á formennskuári þeirra í Norrænu ráðherranefndinni. Það er skipulagt af Norðurlandaskrifstofu forsætisráðuneytisins og skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn. Þingið er þegar fullskipað.

Reykjavík 25. febrúar 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum