Hoppa yfir valmynd
6. mars 2009 Forsætisráðuneytið

Norrænir styrkir til fræðimanna og ungra íslenskra námsmanna

KH_&HGRSamstarfsráðherrar Norðurlanda samþykktu á fundi sínum í Kaupmannahöfn í dag að veita jafnvirði 14,4 milljóna danskra króna til að aðstoða Íslendinga í fjármálakreppunni. Meginmarkmiðið er aðstoða fræðimenn og ungt fólk sem hyggst stunda nám og rannsóknir í háskólum á Norðurlöndum. Styrktaráætlunin nær til næstu tveggja ára.

Kolbrún Halldórsdóttir samstarfsráðherra segir þessa aðstoð afar mikilvæga. Frumkvæði að henni hafi komið frá frændþjóðum og það sé fagnaðarefni að hún beinist að ungu fólki. Með því sé verið að treysta norrænt samstarf til frambúðar og sporna gegn því að íslenskir námsmenn á Norðurlöndum hætti námi vegna fjárhagserfiðleika.

Frekari upplýsingar um stuðningsaðgerðir Norðurlanda við Ísland veitir Kolbrún Halldórsdóttir samstarfsráðherra í s. 862 4808

Á myndinni eru Heidi Grandi Røys og Kolbrún Halldórsdóttir samstarfsráðherrar Noregs og Íslands.

Reykjavík 6. mars 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum