Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2009 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra undirritar reglugerð um starfshætti almannavarna- og öryggismálaráðs

Forsætisráðherra undirritaði í dag reglugerð um starfshætti almannavarna- og öryggismálaráðs sem skipað er samkvæmt 4. gr. laga nr. 82/2008 um almannavarnir. Ráðið kemur saman eftir þörfum og með undirritan reglugerðarinnar í dag verður hægt að kalla það saman með skömmum fyrirvara.

Almannavarna- og öryggismálaráð markar stefnu stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum til þriggja ára í senn. Í almannavarna- og öryggismálastefnu stjórnvalda skal gera grein fyrir ástandi og horfum í almannavarna- og öryggismálum í landinu, fjalla um áhersluatriði varðandi skipulag almannavarna- og öryggismála, forvarnastarf, nauðsynlega samhæfingu á efni viðbragðsáætlana og starfsemi opinberra stofnana á því sviði, nauðsynlegar birgðir til þess að tryggja lífsafkomu þjóðarinnar á hættutímum, endurreisn eftir hamfarir og aðrar aðgerðir sem ráðið telur nauðsynlegar til þess að markmið laga þessara náist.

Í almannavarna- og öryggismálaráði eiga sæti forsætisráðherra, sem jafnframt er formaður þess, dómsmálaráðherra, samgönguráðherra, umhverfisráðherra, heilbrigðisráðherra, utanríkisráðherra og iðnaðarráðherra. Þar að auki er forsætisráðherra heimilt að kveðja allt að tvo ráðherra til setu í ráðinu í senn vegna sérstakra mála.

Einnig eiga sæti í almannavarna- og öryggismálaráði:

  1. Ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis
  2. Ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytis, ríkislögreglustjóri og forstjóri Landhelgisgæslu Íslands.
  3. Ráðuneytisstjóri samgönguráðuneytis, flugmálastjóri, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, siglingamálastjóri og vegamálastjóri.
  4. Ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytis, veðurstofustjóri, brunamálastjóri og forstjóri Umhverfisstofnunar.
  5. Ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytis, landlæknir, sóttvarnalæknir og forstjóri Geislavarna ríkisins.
  6. Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytis.
  7. Ráðuneytisstjóri iðnaðarráðuneytis, orkumálastjóri og forstjóri Landsnets.
  8. Fulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
  9. Fulltrúi Rauða kross Íslands.
  10. Fulltrúi samræmdrar neyðarsvörunar.


Að auki skipar forsætisráðherra tvo fulltrúa til setu í ráðinu samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum