Hoppa yfir valmynd
12. maí 2009 Forsætisráðuneytið

Fyrsti fundur nýrrar ríkisstjórnar haldinn á Akureyri

Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs kemur saman til fyrsta fundar í dag, þriðjudaginn 12. maí. Fundurinn verður haldinn á Akureyri og að sögn þeirra sem gerst þekkja til og lengst muna í þessum efnum, er það í fyrsta sinn sem almennur ríkisstjórnarfundur er haldinn utan Reykjavíkur. Fundir hafa áður verið haldnir á hátíðarstundum á Þingvöllum, en ekki annars staðar á landinu.

Með staðarvalinu vill ríkisstjórnin undirstrika að hún er ekki bara stjórn þeirra sem á höfuðborgarsvæðinu búa, heldur landsins alls. Ekki er útilokað að fleiri fundir en þessi verði haldnir utan Reykjavíkur þegar fram líða tímar.

Fundur ríkisstjórnarinnar verður haldinn kl.12:00 á Bæjarskrifstofunum á Akureyri, Geislagötu 9. Að honum loknum sitja forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar fyrir svörum blaðamanna í Háskólanum á Akureyri, Sólborg, stofu L - 201 kl 14:30.

Reykjavík 12. maí 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum