Hoppa yfir valmynd
29. maí 2009 Forsætisráðuneytið

Úthlutun úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna 2009

Úthlutað hefur verið styrkjum þessa árs úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna. Norska Stórþingið samþykkti í tilefni af ellefu alda afmæli Íslandsbyggðar 1974 að færa Íslendingum eina milljón norskra króna að gjöf í ferðasjóð. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins skal ráðstöfunarfénu, vaxtatekjum af höfuðstól, varið til að styrkja hópferðir Íslendinga til Noregs.

Styrkir voru fyrst veittir úr sjóðnum 1976 og fór nú fram þrítugasta og þriðja úthlutun. Ráðstöfunarfé sjóðsins var að þessu sinni 1,9 milljónir króna. Styrkumsóknir voru 17 en samþykkt var að styrkja eftirtalda aðila: Hollvini eikarbátsins Húna II, Fjölmennt - fullorðinsfræðslu fatlaðra, faghóp um atferlisþjálfun fyrir börn með einhverfu, Matís ohf., hljómsveitina Mammút, Lútherska hjónahelgi og S.L.Á.T.U.R. - samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík.

Reykjavík, 29. maí 2009.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum