Hoppa yfir valmynd
23. júlí 2009 Forsætisráðuneytið

Þjóðhátíðarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum árið 2009 vegna ársins 2010

ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR

auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum árið 2009 vegna ársins 2010

Þjóðhátíðarsjóður, sem starfar samkvæmt skipulagsskrá nr. 361 frá 30. september 1977 með áorðnum breytingum, var stofnaður í tilefni af 1100 ára búsetu á Íslandi 1974.

Tilgangur sjóðsins er:

  • að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.

Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau. Á síðasta ári veitti sjóðurinn 56 styrki samtals að fjárhæð 30,4 m.kr.

Á næstu tveimur árum frá og með árinu 2009 mun sjóðurinn hafa um 33 m.kr. á ári til úthlutunar styrkja. Úthlutunum úr sjóðnum lýkur að þeim tíma liðnum, þ.e. 2010 vegna ársins 2011 og er þá reiknað með að sjóðurinn hafi þegar úthlutað öllu fé sínu í samræmi við tilgang hans.

Umsóknir

Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna á vefsíðu Seðlabanka Íslands. Enn fremur má nálgast eyðublöð í afgreiðslu Seðlabankans, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík.

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2009 og er stefnt að því að úthlutað verði úr sjóðnum 1. desember 2009 með athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Umsóknir skal senda Þjóðhátíðarsjóði, Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík.

Nánari upplýsingar eru veittar í símum 569 9628 og 569 9781 eða

á netfanginu: [email protected].

Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs

Reykjavík 23. júlí 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum