Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2009 Forsætisráðuneytið

Þúsundir manna heimsóttu Stjórnarráðið á menningarnótt.

Menningarnótt 2009 - opið hús í Stjórnarráðshúsinu
Menningarnótt 2009 - opið hús í Stjórnarráðshúsinu

Stjórnarráðshúsið var nú í fyrsta sinn opið á Menningarnótt og þúsundir fólks á öllum aldri litu þar inn og skoðuðu starfsaðstöðu forsætisráðherra og ríkisstjórnarinnar.

Auk þess að skoða húsið gátu gestir kynnt sér sögu þess en það hefur þjónað fjölþættu hlutverki í tímans rás eins og flestum er kunnugt. Öll ráðuneyti ríkisstjórnar Íslands voru í húsinu til 1939 og forseti Íslands hafði þar lengi vel skrifstofu.

Ráðuneytið þakkar þeim fjölmörgu góðu gestum sem litu inn og vonast til þess að sjá sem flesta á Menningarnótt að ári.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum