Hoppa yfir valmynd
21. október 2009 Forsætisráðuneytið

Framkvæmdastjórn AGS fjallar um efnahagsáætlun Íslands

Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) stefnir að því að taka endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands fyrir á fundi sínum miðvikudaginn 28. október næstkomandi. Uppfærð efnahagsáætlun var send framkvæmdastjóra AGS í gær.

Íslensk stjórnvöld telja víst að framkvæmdastjórnin muni samþykkja endurskoðun áætlunarinnar á fundi sínum að viku liðinni. Í kjölfarið mun Ísland fá aðgang að öðrum hluta af lánafyrirgreiðslu AGS upp á 105 miljónir SDR eða 168 milljónir Bandaríkjadala. Þá opnast einnig aðgangur að fyrsta fjórðungi 2,7 milljarða dala lánafyrirgreiðslu Norðurlandanna og Póllands, eða að 675 milljónum dala.

Samkvæmt starfsreglum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verður uppfærð efnahagsáætlun og skjöl henni tengd gerð opinber að loknum fundi framkvæmdastjórnarinnar 28. október næstkomandi.

Reykjavík 21. október 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum