Hoppa yfir valmynd
23. október 2009 Forsætisráðuneytið

Heildarendurskoðun laga um Stjórnarráð Íslands

Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í morgun skipa nefnd til að endurskoða í heild sinni lög um Stjórnarráð Íslands og gera tillögur um lagabreytingar. Gert er ráð fyrir að m.a. verði litið til lagareglna sem um þetta gilda á Norðurlöndunum og víðar eftir atvikum. Nefndin verður skipuð fulltrúa forsætisráðherra sem jafnframt verður formaður, fulltrúa tilnefndum af fjármálaráðherra og utanaðkomandi sérfræðingum á sviði opinberrar stjórnsýslu og vinnuréttar. Samráð verður haft við samtök opinberra starfsmanna um endurskoðunina.

Núgildandi lög um Stjórnarráð Íslands eru að stofni til frá árinu 1969. Þótt lögin hafi tekið nokkrum breytingum frá þeim tíma er það mat forsætisráðuneytisins, með hliðsjón af fenginni reynslu af framkvæmd laganna, að rétt sé og tímabært að ráðast í heildarendurskoðun þeirra.

Meðal þeirra atriða sem varða starfsemi Stjórnarráðsins og þarfnast sérstakrar skoðunar má nefna ákvæði um:

 

  • Starfshætti ríkisstjórnar og fyrirkomulag ríkisstjórnarfunda og annarra ráðherrafunda, m.a. hvaða mál skuli leggja fyrir ríkisstjórnarfundi og í hvaða formi það skuli gert.
  • Innra skipulag ráðuneyta innan Stjórnarráðsins og starfsheiti starfsmanna.
  • Pólitíska aðstoðarmenn ráðherra, m.a. um stöðu pólitískra aðstoðarmanna innan ráðuneytis, ráðningu þeirra, starfslok og fjölda þeirra.
  • Auglýsingaskyldu starfa hjá hinu opinbera og frávik frá þeirri skyldu, m.a. vegna tímabundinna aðstæðna.
  • Heimildir til tilflutnings embættismanna og annarra starfsmanna innan Stjórnarráðsins, m.a. um málsmeðferð og formkröfur laganna og mögulega flutningsskyldu

 


Reykjavík 23. október 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum