Hoppa yfir valmynd
23. október 2009 Forsætisráðuneytið

Sjö svæði sóknaráætlana

Svæðaskipting sóknaráætlunar
Svæðaskipting sóknaráætlunar
  • Nýtt og stærra höfuðborgarsvæði sem þjónar öllu landinu
  • Svæðaskiptingin liður í endurreisn efnahagslífsins
  • Efling á getu svæða til þess að taka að sér ný verkefni
  • Styrkja á samkeppnishæfni svæða og landsins í heild

Á næstu mánuðum verða mótaðar sóknaráætlanir í öllum landshlutum samkvæmt nýrri skiptingu landsins í sjö svæði sem samþykkt hefur verið í ríkisstjórn. Heimamenn á hverju svæði um sig og fjöldi hagsmunaaðila, stofnana og ráðueyta munu koma að verkinu undir forystu landshlutasamtaka og stýrihóps Sóknaráætlunar sem starfar á vegum forsætisráðuneytisins m.a. með þátttöku fimm ráðherra ríkisstjórnarinnar.

Svæðaskiptingin er hugsuð til að ná megi nauðsynlegri viðspyrnu við endurreisn efnahagslífsins. Í henni felst m.a. sýn á að nýtt og stærra höfuðborgarsvæði sem þurfi að starfa sem eina heild. Nær það frá Reykjanesi í Borgarnes og yfir á Árborgarsvæðið. Borgarnes, Akranes og Árborg eru þó jafnframt máttarstólpar á Vesturlandi og Suðurlandi og munu koma að gerð áætlana fyrir þau svæði. Tillaga að svæðaskiptingunni hefur verið unnin í samráði við ráðuneyti, landshlutasamtök og forystu Sambands sveitarfélaga.

Fjölmargir þættir munu fléttast saman við mótun sóknaráætlana í heildstæða áætlun, m.a. atvinnumál, umhverfismál, menntamál, samgöngumál, endurskipulagning opinberrar þjónustu og efling sveitarstjórnarstigsins. Ætlunin er að hver áætlun byggi á greiningu á styrkleikum og veikleikum hvers svæðis, skýrri forgangsröðun og framtíðarsýn sem góð samstaða er um.

Markmið með svæðaskiptingu þessari er að mynda stór og öflug atvinnu- og þjónustusvæði fyrir íbúa landsins. Með svæðaskiptingunni er leitast við að:

  1. Styrkja samkeppnishæfni svæða og landsins í heild.
  2. Stuðla að markvissari uppbyggingu opinberrar þjónustu um allt land og skilvirkari verkaskiptingu milli ríkis og svæða/sveitarfélaga.
  3. Efla getu svæða/sveitarfélaga til þess að taka að sér verkefni og þannig stuðla að aukinni valddreifingu.
  4. Auka samstarf sveitarfélaga og skilvirkni við nýtingu fjármagns.
  5. Byggja upp öflugt höfuðborgasvæði (suðvestursvæði) sem þjónar öllu landinu og styður við uppbyggingu um allt land.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum