Hoppa yfir valmynd
27. október 2009 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra ræddi hlutverk Norðurlanda í Evrópusamstarfinu

Á 61. þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi var í dag efnt til sérstakrar umræðu um hlutverk Norðurlanda í Evrópusamstarfinu, með þátttöku forsætisráðherra Norðurlanda, og þar sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra m.a. í ræðu sinni:

"Hvað varðar stofnanir ESB, þá mun Ísland í norrænum anda vinna með þeim aðildarríkjum sem vilja auka lýðræðisleg vinnubrögð og gagnsæi innan ESB. Við munum gefa mannréttindum og velferð allra sérstakan gaum, ekki síst þegar kemur að minnihlutahópum. Við munum standa vörð um árangur Íslands og Norðurlandanna í jafnréttismálum og leggja lið baráttu ESB fyrir auknu jafnrétti kynjanna. Við viljum stuðla að auknu samstarfi smærri aðildarríkja um leið og mikilvægi samstöðu allra aðildarríkja er áréttað. Loks verður aðstæðum á Norðvestur-Atlantshafi gefinn meiri gaumur með aðild Íslands og íslensk stjórnvöld verða ávallt reiðubúin til að standa vörð um hagsmuni þjóða í þeim heimshluta. Þótt Íslendingar gangi í ESB gleyma þeir ekki næstu nágrönnum og vinum enda deilum við í meginatriðum sömu lífskjörum."

Í tilefni af þinginu voru haldnir fundir forsætisráðherra Norðurlanda með forsætisráðherrum Eistlands, Lettlands og Litháen og stjórnaroddvitum Álandseyja, Færeyja og Grænlands. Þar var m.a. fjallað um norræna samvinnu, Evrópumál, efnahagsmál, loftslagsmál og orkumál. Forsætisráðherra gerði sérstaka grein fyrir fráfarandi formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni, ástandi og horfum í íslenskum efnahagsmálum og umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.

Reykjavík 27. október 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum