Hoppa yfir valmynd
28. október 2009 Forsætisráðuneytið

Yfirlýsing forsætis- og fjármálaráðherra

Forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa fyrir hönd ríkisstjórnarinnar sent frá sér yfirlýsingu um framgang stöðugleikasáttmálans frá 25. júní sl.

Að undanförnu hafa stjórnvöld átt fundi með fulltrúum Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Kennarasambands Íslands, Samtökum starfsmanna fjármálafyrirtækja og Samtökum atvinnulífsins. Í yfirlýsingunni, sem gefin er út með hliðsjón af viðræðum á þessum fundum segir, að gerð stöðugleikasáttmálans síðastliðið vor hafi verið sögulegur og sameiginlegur áfangi til að hefja endurreisn efnahagslífsins og auka tiltrú þjóðarinnar á framtíðina. Það sem þegar hafi áunnist við framfylgd sáttmálans gefi ótvírætt til kynna að það sé þjóðarnauðsyn að halda því verki áfram.

Yfirlýsing forsætis- og fjármálaráðherra

Reykjavík 28. október 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum