Hoppa yfir valmynd
4. desember 2009 Forsætisráðuneytið

Heildarendurskoðun laga um Stjórnarráðið


 

  • Starfshættir ríkisstjórnar og fyrirkomulag ráðherrafunda
  • Innra skipulag og starfsheiti starfsmanna
  • Pólitískir aðstoðarmenn, ráðning, starfslok og fjöldi
  • Auglýsingaskylda og frávik vegna tímabundinna aðstæðna
  • Heimildir til tilflutnings og flutningsskyldu

Forsætisráðherra hefur skipað nefnd sem fær það verkefni að endurskoða lög um Stjórnarráð Íslands í heild sinni og gera tillögur um lagabreytingar. Meðal þeirra atriða sem varða starfsemi Stjórnarráðsins og þarfnast sérstakrar skoðunar má nefna ákvæði um:

1. Starfshætti ríkisstjórnar og fyrirkomulag ríkisstjórnarfunda og annarra ráðherrafunda, m.a. hvaða mál skuli leggja fyrir ríkisstjórnarfundi og í hvaða formi það skuli gert.

2. Innra skipulag ráðuneyta innan Stjórnarráðsins og starfsheiti starfsmanna.

3. Pólitíska aðstoðarmenn ráðherra, m.a. um stöðu pólitískra aðstoðarmanna innan ráðuneytis, ráðningu þeirra, starfslok og fjölda þeirra.

4. Auglýsingaskyldu starfa hjá hinu opinbera og frávik frá þeirri skyldu m.a. vegna tímabundinna aðstæðna.

5. Heimildir til tilflutnings embættismanna og annarra starfsmanna innan Stjórnarráðsins, m.a. um málsmeðferð og formkröfur laganna og mögulega flutningsskyldu.

Núgildandi lög um Stjórnarráð Íslands eru að stofni til frá árinu 1969. Þótt lögin hafi tekið nokkrum breytingum frá þeim tíma er það mat forsætisráðuneytisins, með hliðsjón af fenginni reynslu af framkvæmd laganna, að rétt sé og tímabært að ráðast í heildarendurskoðun þeirra. Óhjákvæmilegt er að endurskoðunin muni jafnframt varða ákvæði í öðrum lögum s.s. lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Gert er ráð fyrir því að við endurskoðunina verði m.a. litið til lagareglna sem um þetta gilda á Norðurlöndunum og víðar eftir atvikum.

Anna Kristín Ólafsdóttir stjórnsýslufræðingur er formaður nefndarinnar, en aðrir í nefndinni eru , Hafdís Ólafsdóttir skrifstofustjóri, tilnefnd af fjármálaráðherra, Gunnar Helgi Kristinsson prófessor, Helgi Áss Grétarsson lögfræðingur* og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur.

Starfsmenn nefndarinnar eru Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, og Arnar Þór Másson, stjórnmálafræðingur í fjármálaráðuneytinu.

 

Reykjavík 4. desember 2009

 

 

*Sú breyting var gerð á skipan nefndarinnar í kjölfar útgáfu fréttatilkynningarinnar að Páll Þórhallsson tók sæti Helga Áss Grétarssonar í nefndinni. Arnar Þór er því eini starfsmaður nefndarinnar.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum