Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2010 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra skipar nefnd sem gerir tillögur um viðbrögð ríkisstjórnar og Stjórnarráðs við skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur skipað nefnd óháðra sérfræðinga sem gera mun tillögur til ríkisstjórnar og Stjórnarráðsins um viðbrögð af hálfu stjórnsýslunnar við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, sbr. lög nr. 142/2008, til þess að rannsaka aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða.

Fyrir liggur að rannsóknarnefndin mun skila ítarlegri skýrslu til Alþingis í byrjun febrúar og á vettvangi forsætisráðuneytisins hefur verið fjallað um hugsanleg viðbrögð við atriðum sem fram kunna að koma í skýrslunni og beinast að stjórnsýslunni og starfsháttum Stjórnarráðsins.

Nefndin er skipuð Gunnari Helga Kristinssyni, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sem er formaður, Oddnýju Mjöll Arnardóttur, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, Ómari H. Kristmundssyni, dósent í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands, Kristínu Benediktsdóttur, hdl., og Trausta Fannari Valssyni, lektor við lagadeild Háskóla Íslands.

Nefndin skal taka skýrslu rannsóknarnefndarinnar til ítarlegrar umfjöllunar og meta þau atriði sem beinast kunna sérstaklega að stjórnsýslunni og starfsháttum Stjórnarráðsins. Nefndin skal svo fljótt sem auðið er gera tillögur til forsætisráðherra og ríkisstjórnar um hugsanleg viðbrögð við þeim í samræmi við ábendingar rannsóknarnefndarinnar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum