Hoppa yfir valmynd
29. janúar 2010 Forsætisráðuneytið

Icesave fundur í Haag

Undanfarnar vikur hafa verið stöðug samskipti milli íslenskra, breskra og hollenskra stjórnvalda vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í Icesavemálinu. Síðdegis í dag er fyrirhugaður fundur í Haag þar sem fjármálaráðherra Hollands, aðstoðarfjármálaráðherra Bretlands, fjármálaráðherra Íslands og formenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks skiptast á upplýsingum og ræða stöðu málsins. Bjarni Benediktsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Steingrímur J. Sigfússon héldu utan til fundarins í gær og hitta í dag Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, og Myners lávarð, aðstoðarfjármálaráðherra Bretlands.


Reykjavík 29. janúar 2010

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum