Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2010 Forsætisráðuneytið

Fagnaðarfundur vegna komu landsliðsins hefst kl. 17:45 í stað 17:30

Fagnaðarfundur vegna heimkomu bronsverðlaunahafa og annarra íslenskra þátttakenda á EM í handbolta 2010 verður í Laugardagshöll í dag, 1. febrúar. Smávægileg seinkun verður á athöfninni vegna tafa á flugafgreiðslu í Kaupmannahöfn. Laugardalshöllin verður opnuð kl. 16:45 en athöfnin mun hefjast um kl. 17:45.

Þeir sem ætla að taka þátt í fagnaðinum eru hvattir til að mæta tímanlega, nota almenningssamgöngur til að komast í höllina eða leggja bílum sínum í hæfilegri fjarlægð frá samkomustaðnum til að greiða fyrir umferð.

Bein útsending verður af viðburðinum á Rás 2 og í Ríkissjónvarpinu.

Reykavík 1. febrúar 2010

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum