Hoppa yfir valmynd
22. desember 2009 Innviðaráðuneytið

Niðurstöður - Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009?

Forsætisráðuneytið hefur látið gera úttekt á vefjum hátt í þrjú hundruð stofnana ríkis og sveitarfélaga. Fyrirtækið Sjá ehf framkvæmdi úttektina og er þetta í þriðja sinn sem slík úttekt er gerð.

Markmiðið með úttektinni er að fá heildstætt yfirlit yfir þá þjónustu sem er í boði, fylgjast með þróun og breytingum á vefjum opinberra aðila, meta gæði þeirra en einnig að auka vitund forsvarsmanna opinberra stofnana og sveitarfélaga um það hvar þeir standa í samanburði við aðra og gefa hugmynd um möguleika og tækifæri sem felast í rafrænni þjónustu.

Könnunin var sem fyrr tvíþætt. Annars vegar voru vefirnir metnir af sérfræðingum samkvæmt gátlistum um innihald, nytsemi, aðgengi og þjónustu. Hins vegar svöruðu forsvarsmenn vefjanna spurningalista og gátu gert athugasemdir við matið. Metnir voru 274 vefir ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga, að meðtöldum ýmsum sérvefjum, þjónustugáttum og vefjum ohf.-fyrirtækja. Svarhlutfall var um 90%.

Meginniðurstöður könnunarinnar:

  • Skýrslan (pdf skjal) og skýrslan sett upp samkvæmt aðgengisreglum (pdf-skjal)
  • Kynning á ráðstefnu Skýrslutæknifélags Íslands 16. desember 2009 (pdf-skjal)

Niðurstöður fyrir einstakar stofnanir:

               innihald
               nytsemi
               aðgengi


Fyrri kannanir:

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum