Hoppa yfir valmynd
12. febrúar 2010 Forsætisráðuneytið

Þjóðfundur á Sauðárkróki

Þjóðfundur verður haldinn á morgun, laugardaginn 13. febrúar, í Fjölbrautaskóla Norð-Vesturlands á Sauðárkróki. Þar koma saman fulltrúar íbúa á svæðinu sem valdir eru með tilviljunarkenndu úrtaki úr þjóðskrá, og fulltrúar hagsmunaaðila. Þar er um að ræða fólk úr sveitarstjórnum, atvinnulífi, launþegasamtökum,stofnunum og stjórnmálaflokkum. Níutíu hafa skráð sig til þátttöku, en 110 manns manns voru á þjóðfundi í Bolunarvík sl. laugardag og 80 manns Egilsstöðum laugardaginn þar áður. Þjóðfundurinn á Sauðárkróki stendur frá kl. 10.00 árdegis til kl. 16:00.

Verkefnið á þjóðfundum landshlutanna, sem haldnir verða á hverjum laugardegi til 20. mars, er að setja fram hugmyndir um framtíðaráform á viðkomandi svæði til eflingar atvinnulífs og samfélags á grundvelli sérstöðu og styrkleika svæðanna. Þessi vinna verður grundvöllur að áætlun hvers landshluta innan þeirrar sóknaráætlunar sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að gerð verði og tillaga til þingsályktunar hefur verið lögð fram um á Alþingi. Undirbúningur fundarins á Sauðárkróki var höndum stýrihóps um sóknaráætlun en framkvæmd hans er á vegum Samtaka sveitarfélaga á Norð-Vesturlandi.


Reykjavík 12. febrúar 2010

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum