Hoppa yfir valmynd
19. febrúar 2010 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra mælti fyrir ályktun um Sóknaráætlun 20/20

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mælti fyrir tillögu til þingsályktunar fimmtudaginn 18. febrúar sl. þar sem Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa sóknaráætlun til að efla atvinnulíf og samfélag um allt land.

Fyrirhuguð sóknaráætlun er liður í efnahagslegri endurreisn þjóðarbúsins og hefur það að markmiði að Ísland verði í fararbroddi í verðmætasköpun, menntun, velferð og lífsgæðum. Til þess að svo megi verða þarf að huga sérstaklega að hvernig hægt er að tryggja samkeppnishæfni landsins til lengri tíma.

Sóknaráætlunin felur að sögn forsæstisráðherra í sér áform um fjárfestingu í atvinnustarfsemi, mannauði og nauðsynlegum innviðum efnahagslífsins og stefnu um hvernig megi styrkja menntun og menningu, nýsköpun og þróun, umhverfismál og samfélagslega innviði.

Miklar umræður urðu um þingsályktunartillöguna á Alþingi.

Framsöguræða forsætisráðherra fyrir tillögu til þingsályktunar um Sóknaráætlun 20/20


Reykjavík 19. febrúar 2010

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum