Hoppa yfir valmynd
12. mars 2010 Forsætisráðuneytið

Frumvarp um sanngirnisbætur afgreitt í ríkisstjórn

Frumvarp um sanngirnisbætur afgreitt í ríkisstjórn
Frumvarp um sanngirnisbætur afgreitt í ríkisstjórn

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun frumvarp forsætisráðherra um sanngirnisbætur vegna misgjörða á stofnunum og heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007. Þar er kveðið á um bætur til þeirra sem orðið hafa fyrir varanlegum skaða af illri meðferð eða ofbeldi á tilteknum heimilum og stofnunum fyrir börn. Frumvarpið verður nú sent þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna til frekari meðferðar og væntanlega lagt fram á Alþingi í næstu viku.

„Ég fagna því mjög að niðurstaða í þessu máli skuli vera í augsýn. Skýrslan um Breiðavíkurheimilið kom út í ársbyrjun 2008 og þá strax gáfu stjórnvöld fyrirheit um bætur. Þeir sem eiga um sárt að binda í kjölfar vistunar á því heimili og öðrum sem rannsóknarnefndin hefur og mun fjalla um eru orðnir langeygir eftir efndum. Það er lykilatriði að nú hefur náðst sátt við fulltrúa Breiðavíkursamtakanna um meginatriðin í frumvarpinu,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi.

Samkvæmt frumvarpinu geta bætur numið allt að 6 milljónum króna til hvers einstaklings. Við mat á því hvort bótaskilyrði eru uppfyllt verður ekki einvörðungu litið til líkamlegra og sálrænna afleiðinga af vistinni heldur einnig félagslegra eins og missis tækifæra. Náið samráð hefur verið haft við Breiðavíkursamtökin við vinnslu frumvarpsins og hefur meðal annars verið tekið tillit til sjónarmiða þeirra um erfðarétt barna vistmanna sem fallnir eru frá. Þá verður skipaður sérstakur tengiliður við fyrrverandi vistmenn sem munu aðstoða við kröfugerð á hendur ríkinu og leiðbeina um önnur úrræði sem ríki og sveitarfélög bjóða upp á eins og varðandi menntun og endurhæfingu.

Málsmeðferð verður í tveimur þrepum samkvæmt frumvarpinu. Dómsmála- og mannréttindaráðherra, sem fara mun með framkvæmd laganna, mun fela tilteknum sýslumanni að gefa út innköllun, fara yfir lýstar kröfur og gera viðkomandi sáttaboð telji hann líkur á að bótaskilyrði séu uppfyllt. Lögð er áhersla á hraða og einfalda málsmeðferð af hálfu sýslumanns. Uni fyrrverandi vistmaður ekki sáttaboði eða hafi kröfu hans verið synjað getur hann snúið sér til sérstakrar úrskurðarnefndar sem komið verður á laggirnar. Þar mun fara fram ítarlegri könnun á aðstæðum viðkomandi einstaklings og honum gefinn kostur á að gefa munnlega skýrslu. Á báðum stigum verða sönnunarkröfur vægari en venja er í skaðabótamálum.

Erfitt er að áætla kostnað fyrir ríkið af bótagreiðslum, m.a. vegna þess að rannsókn er ekki enn lokið á öllum þeim heimilum sem falla undir lögin. Komið hafa út skýrslur um Breiðavíkurheimilið, Heyrnleysingjaskólann, Bjarg og Kumbaravog. Skýrslur um Reykjahlíð, Silungapoll og Jaðar eru væntanlegar síðar á árinu. Síðustu skýrslurnar verða um Upptökuheimili ríkisins og Unglingaheimili ríkisins og munu koma út árið 2011. Í kostnaðarumsögn fjármálaráðuneytis er tekið það dæmi að ef 100 manns eigi rétt á bótum og hljóti meðalbætur þá verði kostnaður ríkisins 300 milljónir króna auk kostnaðar af starfi úrskurðarnefndar og málskostnaðar.

Frumvarpið var unnið af starfshópi sem í áttu sæti Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri forsætisráðuneytinu, formaður, Kristrún Heimisdóttir, lögfræðilegur ráðunautur félags- og tryggingamálaráðuneytinu, Ása Ólafsdóttir, aðstoðarmaður dómsmála- og mannréttindaráðherra, Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður og Eiríkur Jónsson, lektor við lagadeild HÍ. Starfshópurinn skilaði af sér fullbúnu frumvarpi fyrr í vikunni nema hvað ákvörðun um hámarksfjárhæð bóta og erfðarétt var vísað til forsætisráðherra.

 

Reykjavík, 12. mars 2010

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum