Hoppa yfir valmynd
12. mars 2010 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra fundar með fulltrúum Evrópunefndar þýska þingsins

Forsætisráðherra fundar með fulltrúum Evrópunefndar þýska þingsins
Forsætisráðherra fundar með fulltrúum Evrópunefndar þýska þingsins

Forsætisráðherra fundaði í dag með sendinefnd frá Evrópunefnd þýska þingsins.Nefndin mun fjalla um umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu, áður en kanslari Þýskalands tekur afstöðu til umsóknarinnar á fundi leiðtoga Evrópusambandsins. Rætt var um stöðu mála varðandi aðildarumsóknina og afgreiðslu hennar, stöðu Íslands í efnahagsmálum og samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um uppbyggingu efnahagslífsins. Forsætisráðherra áréttaði að staða mála varðandi Icesave-samningaviðræður ætti ekki að hafa áhrif á öðrum vettvangi og væri tvíhliða málefni sem yrði leyst í því samhengi. Ísland hefði mikið fram að færa, meðal annars á sviði jafnréttismála, umhverfismála og ekki síður með menningu sinni og sögu. Þekking og reynsla Íslands í nýtingu sjálfbærra auðlinda, einkum hvað varðar sjávarútveg og endurnýjanlega orkugjafa, ætti að vera eftirsóknarverð og hugsanlega fyrirmynd að stefnumörkun fyrir Evrópusambandið. Fram kom á fundinum að mikil jákvæðni er í þýska þinginu gagnvart aðildarumsókn Íslands. Ljóst er þó að ferli mála tekur almennt lengri tíma en svo að niðurstaða verði fengin áður en næsti fundur leiðtogaráðs Evrópusambandsins verður haldinn, 25.-26. mars n.k. Forsætisráðherra lýsti ánægju sinni með þau jákvæðu viðbrögð og áhuga sem þingið sýndi með heimsókn sinni og viðræðum hér í tengslum við málið og kvaðst vonast eftir að ákvörðun lægi fyrir sem fyrst.

Reykjavík 12. mars 2010

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum