Hoppa yfir valmynd
9. júní 2010 Forsætisráðuneytið

Fundur forsætisráðherra með kínverskri sendinefnd undir forystu He Guoqiang

Forsætisráðherra tók í morgun á móti He Guoqiang, miðstjórnarmanni í kínverska kommúnistaflokknum, ásamt sendinefnd fulltrúa ýmissa stjórnvalda í Kína.

Rætt var um tvíhliða samstarf landanna á ýmsum sviðum og nýgerðan samning um gjaldeyrisskipti á milli Seðlabanka Íslands og Seðlabanka Kína sem undirritaður var í morgun. Einnig var rætt um efnahagsmál landanna og viðbrögð við alþjóðlegu fjármálakreppunni. Fram kom vilji til að auka samstarf á milli landanna á menningarsviði, deila þekkingu á nýtingu jarðhita og stuðla að fjölgun ferðamanna m.a. með þátttöku Íslands í World Expo 2010 í Sjanghæ.

Reykjavík 9. júní 2010

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum