Hoppa yfir valmynd
25. júní 2010 Forsætisráðuneytið

Hvatningarátak - viðhald, verslun og þjónusta innanlands sumarið 2010

Stjórnvöld í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins efna til hvatningarátaks í þágu innlendrar atvinnustarfsemi, framleiðslu, verslunar og þjónustu. Alþýðusamband Íslands og aðildarfélög, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu, og Nýsköpunarmiðstöð Íslands taka þátt í verkefninu.

Fólk er hvatt til þess að nýta sér endurgreiðslu virðisaukaskatts og skattaívilnanir til að framkvæma og vinna við íbúðarhúsnæði og sumarhús og nýta sér fagmenn við þau verk.

Átakið felur meðal annars í sér persónulega ráðgjöf fagmanna um handbragð við viðhaldsframkvæmdir undir leiðsögn byggingadeildar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Leitað hefur verið til fjármálastofnana um að taka þátt í átakinu og bjóða sérstök framkvæmdalán til almennings á hagstæðum kjörum í tengslum við átakið. Þá mun Byggðastofnun bjóða fyrirtækjum á landsbyggðinni óverðtryggð lán til viðhaldsverkefna. Þau  verða til 12 ára á 7% nafnvöxtum, óverðtryggt. Einnig verða vikuleg tilboð á vörum og þjónustu íslenskra fyrirtækja í tengslum við átakið.

Í tengslum við hvatningarátakið er vert að minna sérstaklega á ákvarðanir stjórnvalda um:

  • hækkun á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við eigið íbúðarhúsnæði og sumarhúsa í 100% úr 60%
  • skattaívilnanir til einstaklinga sem fjárfesta í viðhaldi á eigin húsnæði sem nema allt að 200 þúsund króna lækkun á tekjuskattsstofni hjá einstaklingum og 300 þúsund krónum hjá hjónum og samsköttuðum.

 Heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður um 28 milljónir króna. Ríkissjóður leggur til 18 milljónir króna og aðilar vinnumarkaðarins 10 milljónir króna.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum