Hoppa yfir valmynd
30. júlí 2010 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra fundar með Greg Selinger, forsætisráðherra Manitoba

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Greg Selinger forsætisráðherra Manitoba í Kanada
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Greg Selinger forsætisráðherra Manitoba í Kanada

Forsætisráðherra átti í dag fund með Greg Selinger, forsætisráðherra Manitoba í Kanada.  Manitobaríki hefur stutt við menningarviðburði og samstarf sem tengist íslenskri arfleifð á svæðinu, meðal annars uppbyggingu safns, menningar- og listahátíðina Núna-Now og kvikmyndahátíð.  Forsætisráðherrarnir ræddu um menningarleg samskipti, svo og Snorraverkefnið sem nú hefur verið við lýði í áratug og veitt meira en 160 ungmennum frá Kanada og Íslandi tækifæri til að kynnast sögu og menningu forfeðra sinna.

Forsætisráðherrarnir ræddu einnig aukna möguleika í ferðaþjónustu og viðskiptum, svo og efnahagsmál í alþjóðlegu samhengi.  Forsætisráðherra bauð forsætisráðherra Manitoba að sækja Ísland heim og er ráðgert að af þeirri heimsókn verði á næsta ári.

Reykjavík, 30. júlí 2010

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum