Hoppa yfir valmynd
20. ágúst 2010 Forsætisráðuneytið

Auknar gæðakröfur til stjórnarfrumvarpa

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun endurskoðaðar reglur um undirbúning og meðferð stjórnarfrumvarpa ásamt gátlista. Reglurnar eru ítarlegri en áður og er gert ráð fyrir aukinni eftirfylgni með þeim af hálfu forsætisráðuneytisins. Hinar endurskoðuðu reglur eru m.a. svar við tillögum sem fram hafa komið á Alþingi um að auka þurfi gæði lagasetningar. Er nýrri skrifstofu löggjafarmála í forsætisráðuneytinu ætlað mikilvægt hlutverk við að samræma gæðakröfur, leiðbeina ráðuneytum og fara yfir frumvörp áður en þau verða lögð fram í ríkisstjórn.  Ráðuneyti þurfa því að senda forsætisráðuneytinu frumvarp ásamt útfylltum gátlista í tæka tíð fyrir ríkisstjórnarfund. Skrifstofa löggjafarmála veitir síðan umsögn um hvort frumvarp standist gæðakröfur.

Í skýrslunni Starfsskilyrði stjórnvalda sem forsætisráðuneytið gaf út árið 1999 og var afrakstur nefndar undir forsæti Páls Hreinssonar þáverandi dósents var einmitt lagt til að kannað yrði hvort ekki væri ástæða til að koma slíkri skrifstofu á fót innan Stjórnarráðsins til þess að stuðla að betri undirbúningi lagafrumvarpa. Í skýrslu starfshóps forsætisráðherra um viðbrögð stjórnsýslunnar við skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis er einnig hvatt til þess að gæðastarf á þessu sviði verði eflt.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum