Hoppa yfir valmynd
14. október 2010 Forsætisráðuneytið

Mikilvægt skref í átt að sameiginlegum lausnum um skuldavanda

Samráðshópur ríkisstjórnarinnar um skuldavanda heimila boðaði forsvarsmenn fjármálastofnanna og lífeyrissjóða til fundar í gær, auk umboðsmann skuldara, talsmann neytenda og fulltrúa Hagsmunasamtaka heimilanna.

Forsætisráðherra undirstrikaði á fundinum að úrlausn skuldavanda heimila og fyrirtækja sé ein mikilvægasta forsenda þess að hagvöxtur geti farið að vaxa og endurreisn efnahagslífisins kæmist á góðan skrið. Sameiginlegt verkefni fundarmanna væri að finna lausnir til framtíðar. Fundinum væri ekki ætlað að ljúka þeirri umræðu heldur hefja nýja sameiginlega vegferð.

Í erindi Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra kom fram að aldurshópurinn 25-40 ára er langskuldsettasti hópurinn og að fjölmörg heimili eru með verulega yfirveðsettar fasteignir. Einnig sýndi fjármálaráðherrann fram á hvað tillögur um 18% niðurfellingu skulda þýða fyrir ríkissjóð, lífeyrisjóði, Íbúðalánasjóð og bankastofnanir.

Forsvarsmenn lánastofnanna gerðu grein fyrir stöðu mála í viðkomandi stofnunum og hvernig úrræði hefðu nýst skuldurum í vanda. Fram kom að 85-90% lána væru í skilum. Sá hópur sem á í verulegum vanda er afmarkaður að mati fjármálastofnanna, en fer því miður stækkandi. Sértæk skuldaúrræði hefðu ekki nýst sem skyldi og margir skuldara teldu úrræðin flókin í framkvæmd. Töldu forsvarsmenn lánastofnana varhugavert að fara leið almennrar skuldaniðurfellingar. Fremur ætti að laga þau úrræði sem fyrir hendi eru.

Forsvarsmenn Hagsmunasamtaka heimilanna gerðu grein fyrir sínum hugmyndum um almenna skuldaniðurfellingu um allt að 15½% lækkun höfuðstóls.

Umboðsmaður skuldara rakti stöðu mála í sínu embætti og fyrirhugaðar breytingar til að styrkja embættið. Talsmaður neytenda fór yfir tillögur sínar um  eignarnám verðlána einstaklinga og niðurfærslu þeirra með gerðardómi.  

Þótt umræður á fundinum hafi verið hreinskiptar og jafnvel hvassar, var góður samningsvilji til staðar. Lagði forsætisráðherra til að aðilar myndu hittast fljótlega aftur en áður myndi  sérfræðingahópur meta framkomnar hugmyndir og leiðir til lausnar.
Forsætisráðherra sagði fundinn afar mikilvægt skref í átt að sameiginlegum lausnum og samfélagslegri sátt í þessu brýna máli.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum