Hoppa yfir valmynd
12. júlí 2011 Forsætisráðuneytið

Hringvegurinn þegar opinn að hluta með ferjutengingum; vegtenging mögulega um miðja næstu viku

Ríkisstjórnin fjallaði í morgun á aukafundi um afleiðingar hlaupsins úr Mýrdalsjökli sem tók af brúna yfir Múlakvísl. Á fundinn komu Jón Bjartmarz, yfirlögregluþjónnn frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri og Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Ríkisstjórnin lýsir ánægju með skjót og fumlaus viðbrögð almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra og Vegagerðar auk þess sem samstarf við björgunarsveitir er nú sem endranær ómetanlegt. Allt hefur verið gert sem mögulegt er til að hraða aðgerðum og tryggja öryggi vegfarenda.

Vegagerðin stefnir að því að ljúka smíði bráðabirgðabrúar yfir Múlakvísl á næstu 10 dögum þannig að samband um Hringveginn komist á um miðja næstu viku. Meðan vegasamband er rofið verður boðið upp á selflutning fólks og bíla yfir ána og traustir og háir bílar geta nýtt sér Fjallabaksleið nyrðri sem hjáleið.

Þegar stórflóð í Múlakvísl sópaði burtu brúnni á Hringveginum snemma morguns laugardaginn 9. júlí rofnuðu samgöngur um helstu flutningaleiðina um Suðurland og var almannavarnakerfið virkjað. Tjónið er metið á um 500 milljónir króna, þ.e. endurbygging varanlegrar brúar, kostnaður við bráðabirgðabrú og viðgerð á vegi og varnargörðum og kostnaður við margháttaðan aukinn viðbúnað og þjónustu lögreglu- og björgunarliðs.

Ekki látið standa á kostnaði

Ríkisstjórnin hefur gefið Vegagerðinni og öðrum aðilum sem sinna viðgerðum, björgunarstörfum og öðrum verkefnum vegna flóðsins fulla heimild til að gera allt sem mögulegt er til að koma sem fyrst á tengingu. Einnig að gera þær bráðabirgðaráðstafanir sem taldar eru nauðsynlegar svo sem við ferjuflutninga og lagfæringar á Fjallabaksleið á meðan Hringvegurinn er rofinn. Ekki verður látið standa á kostnaði við slíkar aðgerðir.

Vegagerðin leggur mikla áherslu á að bráðabirgðabrú yfir Múlakvísl komist í gagnið sem fyrst. Tveir flokkar brúarvinnumanna eru nú að störfum við verkið og fleiri verða kallaðir til eftir þörfum. Með því að vinna á sólarhringsvöktum er talið að ljúka megi smíðinni á 10 dögum og að unnt verði að opna veginn um miðja næstu viku.

Meðan Hringvegurinn er lokaður er unnt að komast milli byggðarlaga á Suðurlandi um Fjallabaksleið nyrðri. Hún er aðeins fær traustum bílum og háum og öflugum rútum. Hámarkshraði hefur verið lækkaður til að auka umferðaröryggi og öxulþungi takmarkaður við 7 tonn. Vegagerðin hefur lagfært leiðina nokkuð og sér um þjónustu og lagfæringar og lögregla og björgunarsveitir eru vegfarendum til halds og trausts. Þá hefur Vegagerðin komið upp skiltum á nokkrum helstu leiðum á þjóðvegakerfinu um verulegar tafir. Vakin er og athygli á því að rútuferðir eru samkvæmt áætlun milli Reykjavíkur og Hafnar svo og flugsamgöngur.

Fólksbílar ferjaðir yfir ána

Unnt er að selflytja fólk og fólksbíla yfir Múlakvísl aðilum að kostnaðarlausu þar sem tveir öflugir vörubílar og rúta hafa verið fengin til að annast þá þjónustu frá kl. 8 til 22 til að byrja með. Þá hafa bílaleigur komið upp skiptistöðvum við ána þannig að unnt sé að skila bíl öðrum megin, fá flutning með rútu yfir ána og taka bíl á ný hinum megin. Í undirbúningi er að auka afköst í þessum flutningum.

Upplýsingar á iceland.is

Til að tryggja upplýsingagjöf fyrir ferðamenn tryggir Íslandsstofa að vefsíðan iceland.is verði aðgengileg gátt inn á síður Vegagerðarinnar, almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, Safe Travel, Veðurstofunnar og fleiri aðila. Þá mun Vegagerðin færa inn jafnt og þétt nýjar upplýsingar og/eða kort um stöðu mála. Ferðamálastofa mun eftir þörfum senda ferðaþjónustuaðilum nýjustu upplýsingar á ensku og íslensku, byggðar á stöðuskýrslum almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra og upplýsingum frá Vegagerðinni, svo svara megi fyrirspurnum um stöðuna á öruggan og samræmdan hátt.

Hér er fréttatilkynningin á ensku

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum