Hoppa yfir valmynd
3. september 2011 Forsætisráðuneytið

Aðfinnslum SA vísað á bug

Í ræðu forsætisráðherra á Alþingi í gær 2. september lagði ráðherra ríka áherslu á að fyrirtækin í landinu færu varlega í verðhækkanir og veltu ekki launahækkunum að fullu yfir í verðlag. Benti ráðherra á að hlutur launa í landsframleiðslu hefði lækkað mikið og aldrei verið lægri.

Orðrétt segir í ræðunni:

„Í því sambandi bendi ég á að hlutur launa í landsframleiðslu hefur aldrei verið lægri en nú eða um 59% samanborið við yfir 72% árið 2007. Lækkunin svarar til 13% af landsframleiðslu sem farið hafa frá launþegum til fyrirtækja, í krónum talið um 200 milljarðar króna. Það ætti að létta mörgum fyrirtækjum að standa undir kjarabótum án þess að hækkunum sé velt út í verðlagið.“

Þessi orð verður Samtökum atvinnulífsins tilefni til að senda fjölmiðlum fréttatilkynningu í gær þar sem orð forsætisráðherra eru rengd.

Þær tölur sem forsætisráðherra vitnar til eru frá Hagstofu Íslands. Þær eru öllum aðgengilegar á heimasíðu Hagstofunnar (www.hagstofa.is) og bera heitið “Skipting landsframleiðslu eftir framleiðsluþáttum 1973-2010.” Hér eru sýndar tvær töflur. Sú fyrri sýnir hlutfallslega skiptingu framleiðslunnar eftir framleiðsluþáttum, en sú síðari sýnir heildarfjárhæðir. Síðari taflan sýnir að launagreiðslur í heild hafa staðið í stað frá 2007, en vergur rekstrarafgangur hefur aukist um 250 milljarða króna. Með öðrum orðum hlutur fyrirtækjanna hefur aukist um 250 milljarða króna og hlutur launþega er óbreyttur. Forsætisráðherra vísar ásökunum Samtaka atvinnulífsins um að fara ekki með rétt mál á bug.

Tafla sem sýnir hlutfallslega skiptingu landsframleiðslu Upplýsingar um skiptingu landsframleiðslu eftir framleiðsluþáttum 1973-2010 á vef Hagstofu Íslands: http://hagstofa.is/?PageID=2602&src=/temp/Dialog/varval.asp?ma=THJ01501%26ti=Skipting+landsframlei%F0slu+eftir+framlei%F0slu%FE%E1ttum+1973%2D2010+%26path=../Database/thjodhagsreikningar/landsframleidsla/%26lang=3%26units=Milljónir króna/hlutfall

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum