Hoppa yfir valmynd
6. september 2011 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra fundar með forseta króatíska þingsins

Luka Bebić forseti króatíska þingsins og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
Luka Bebić forseti króatíska þingsins og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra

Forsætisráðherra tók á móti forseta króatíska þingsins, Luka Bebić, í Stjórnarráðinu í dag. Forseti þingsins er í opinberri heimsókn hér á landi í boði forseta Alþingis. Á fundinum var rætt um aðildarviðræður Íslands við ESB og fyrirhugaða aðild Króatíu sem lauk viðræðum við Evrópusambandið 30. júní s.l. Ennfremur var rætt um efnahagsmál í ríkjunum og á alþjóðavettvangi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum