Hoppa yfir valmynd
19. október 2011 Forsætisráðuneytið

Heimsókn stækkunarstjóra Evrópusambandsins, Stefan Füle

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og Stefan Füle, yfirmaður stækkunarmála Evrópusambandsins
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og Stefan Füle, yfirmaður stækkunarmála Evrópusambandsins

Forsætisráðherra tók í dag á móti Stefan Füle, yfirmanni stækkunarmála Evrópusambandsins, í Stjórnarráðinu.

Á fundinum var rætt um framvindu aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið, en í dag fór fram í Brussel ríkjaráðstefna Íslands og ESB.  Þar  voru tveir samningskaflar, um hugverkarétt og frjálsa för fólks, opnaðir og þeim lokað. Fjórir kaflar til viðbótar voru opnaðir á ríkjaráðstefnu í júní og tveimur þeirra lokað þá þegar.

Forsætisráðherra lýsti ánægju með ferlið og kvað mikilvægt að hreinskiptin og traust samskipti væru í samningaviðræðunum, bæði við framkvæmdastjórn og aðildarríkin, enda væri opnun stærri og erfiðari kafla í samningaferlinu framundan.

Forsætisráðherra og stækkunarstjórinn gáfu út eftirfarandi sameiginlega yfirlýsingu:

Við erum ánægð með að viðræðuferli Íslands vegna umsóknar um aðild að Evrópusambandinu hefur gengið með ágætum.  Stækkunarskrifstofa framkvæmdastjórnarinnar er mikilvægur og traustur samstarfsaðili, bæði aðildarríkjanna og Íslands í því að skipuleggja ferlið og viðræðurnar. Við höfum rætt um frekari skref í ferlinu og sjáum fram á góða samvinnu við opnun stærri kafla sem færa nýjar áskoranir, og finna gagnlegar lausnir sem henta báðum aðilum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum