Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2011 Forsætisráðuneytið

Fundur forsætisráðherra með forsætisráðherra Belgíu

Forsætisráðherrar Íslands og Belgíu
Forsætisráðherrar Íslands og Belgíu

Forsætisráðherra átti síðdegis fund með forsætisráðherra Belgíu, Yves Leterme. Rætt var um efnahagsmál, meðal annars stöðu Íslands og Belgíu eftir efnahagserfiðleikana sem verið hafa á alþjóðavettvangi. Einnig var rætt um aðildarferli Íslands og stöðu í viðræðum við Evrópusambandið og þakkaði forsætisráðherra sérstaklega fyrir stuðning Belgíu á formennskutíma þeirra fyrri hluta ársins 2010 þegar Evrópusambandið tók ákvörðun um að opna formlega viðræður við Ísland.

Fyrir liggur að ný stjórn taki við í Belgíu fyrir lok árs og lýsti núverandi forsætisráðherra ánægju með að geta átt áframhaldandi samstarf við Ísland í næsta starfi sínu en hann tekur við stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra OECD við lok ársins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum