Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2011 Forsætisráðuneytið

Fræðslufundur um skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2010

Stjórnarráðið og umboðsmaður Alþingis efna á morgun, 1. desember, til opins fræðslufundar fyrir starfsfólk stjórnsýslunnar í tilefni af útkomu á skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2010. Fundurinn verður haldinn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík milli kl. 15 og 17. Sjá nánar meðfylgjandi dagskrá.

Skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2010

Lærdómur og fróðleikur

Fræðslufundurinn verður haldinn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu fimmtudaginn 1. desember nk.  milli kl. 15 og 17.

Dagskrá:

  1. Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins, setur fundinn.
  2. Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis.
    -Starf umboðsmanns  2010 – staðan nú – Stjórnsýslan í ljósi skýrslu umboðsmanns.
    -Efni úr formála: Málefni opinberra starfsmanna, eftirlitsþátturinn í starfi stjórnvalda, með lögum skal land byggja – gæði lagasetningar – aðgengi að upplýsingum í stjórnsýslunni.
  3. Berglind Bára Sigurjónsdóttir, skrifstofustjóri.
    -Svör við erindum og málshraðareglur í stjórnsýslunni.
  4. Særún María Gunnarsdóttir, lögfræðingur.
    - Helstu viðfangsefni umboðsmanns á árinu 2010 – framkvæmd stjórnsýslulaga og reglna
    - Endurnýjuð heimasíða umboðsmanns Alþingis – Meiri upplýsingar um afgreidd mál
  5. Fyrirspurnir og umræður.

Fundarstjóri: Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri.

Vakin er athygli á því að hægt er að nálgast skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2010 á heimasíðu embættisins, www.umbodsmadur.is, sjá fréttir.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum