Hoppa yfir valmynd
20. desember 2011 Forsætisráðuneytið

Undirbúningur málsvarnar fyrir EFTA dómstólnum í Icesave málinu og fyrirsvar.

 

Ríkisstjórnin fjallaði á fundi sínum í morgun um undirbúning málsvarnar fyrir EFTA dómstólnum í Icesave málinu. Lögð var áhersla á mikilvægi víðtæks samráðs á undirbúningsstigi þannig að tryggja megi breiða og trausta samstöðu um málsvörnina.  

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur ákveðið að vísa samningsbrotamáli á hendur Íslandi vegna ábyrgðar á greiðslu lágmarkstryggingar á Icesave-reikningunum til EFTA dómstólsins.

Vinna að Icesave-málinu hefur til þessa verið á borði forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, utanríkisráðuneytis og efnahags- og viðskiptaráðuneytis, en samninganefnd sú sem bar ábyrgð á Icesave III samningunum var hins vegar skipuð með samráði stjórnar og stjórnarandstöðu. Eftir að þeim samningum var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu hefur efnahags- og viðskiptaráðuneytið leitt samskipti vegna málsins við ESA, en málið verið unnið með aðkomu utanríkisráðuneytis og í samráði við ríkisstjórn, ráðherranefnd um efnahagsmál, utanríkismálanefnd og fleiri aðila.

Utanríkisráðuneytið er í fyrirsvari fyrir stjórnvöld í öllum samningsbrotamálum sem Eftirlitsstofnun EFTA höfðar gegn ríkisstjórn Íslands. Sama á almennt við um önnur mál sem stjórnvöld hafa stefnt sér inn í, sjá hjál. minnisblað. Er þetta jafnframt í samræmi við minnisblað sem utanríkisráðherra og efnahags- og viðskiptaráðherra lögðu fram í ríkisstjórn þann 12. apríl sl. varðandi málsvarnaráætlun Íslands í þessu máli, en þar var kveðið á um það að utanríkisráðuneytið færi með fyrisvar í málsvörn fyrir EFTA-dómstólnum, kæmi til málshöfðunar. Utanríkisráðherra ber fulla stjórnskipulega ábyrgð á meðferð málsins sbr. 6. og 7. tölul. 9. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands enda snýst málið um grundvallaratriði varðandi túlkun og áhrif EES-samningsins og er höfðað fyrir alþjóðastofnun sem hann einn er í fyrirsvari gagnvart. Hann mun á öllum stigum málsvarnar hafa náið og virkt samráð við efnahags- og viðskiptaráðherra vegna innistæðutrygginga og annarra mála er undir hans verksvið heyra, forsætisráðherra vegna neyðarlaganna og við fjármálaráðherra vegna fjármálalegra þátta málsins. Utanríkisráðherra mun upplýsa ríkisstjórn reglulega um feril málsins. Ennfremur mun hann leggja ríka áherslu á gott samráð við utanríkismálanefnd, sb. 24. gr. þingskapalaga, og fara með annað samráð við innlenda og erlenda aðila um málið.

Markmið málsvarnarinnar er að fá kröfum ESA hnekkt og tryggja eins hagfellda niðurstöðu fyrir Ísland og frekast er kostur.  Í því skyni verður tryggt liðsinni lögmanna sem hafa reynslu af málflutningi fyrir Evrópudómstólunum í Lúxemborg. Utanríkisráðherra mun hafa samráð við ríkisstjórn um val verjanda í málinu og velur jafnframt lögfræðilegt sérfræðingateymi sem vinnur saman í hans umboði að málsvörninni. Lögmenn ríkisins í máli þessu verða einungis valdir á grundvelli hæfni og þekkingar. Jafnframt er mikilvægt að hópurinn sé þannig saman settur að breið og traust samstaða verði um málsvörnina.

Undir rekstri málsins gefst aðildarríkjum EES og framkvæmdastjórninni kostur á að koma að málarekstrinum með skriflegum umsögnum og þátttöku í málflutningi til að styðja annan hvorn aðila málsins. Ennfremur gefst þeim aðildarríkja sem sérstaka hagsmuni geta haft af niðurstöðu tækifæri til að stefna sér inní málið til meðalgöngu en í því felst enn ríkari þátttaka í málarekstrinum. Þar sem efnahags- og viðskiptaráðherra fer með málefni innstæðutrygginga mun utanríkisráðherra njóta liðsinnis hans hans við að afla málstað Íslands meðalgöngu og eða stuðnings í formi skriflegra athugasemda frá einstökum aðildarríkja EES.

Utanríkisráðuneytið mun í samráði við fjármálaráðuneytið gera kostnaðaráætlun fyrir málareksturinn.

Meðfylgjandi eru minnisblöð varðandi málið sem lögð voru fram í ríkisstjórn í morgun.

Minnisblað um fyrirsvar

Minnisblað um undirbúning að málsvörn fyrir EFTA-dómstólnum í Icesave-málinu

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum