Hoppa yfir valmynd
22. júní 2012 Forsætisráðuneytið

Vel heppnað málþing um auðlindastefnu

Ísland
Ísland
  • Meginmarkmið heildstæðrar auðlindastefnu er að varanlegur eignar- og yfirráðaréttur þjóðarinnar yfir sameiginlegum auðlindum sínum og arði af þeim verði tryggður.
  • Auðlindaarður þjóðarinnar af nýtingu auðlinda sinna verði sýnilegur og honum ráðstafað með sýnilegum hætti. Ein besta tryggingin er ákvæði í stjórnarskrá.
  • Auðlindastefnunefnd tekur undir tillögur í skýrslu Auðlindanefndar frá árinu 2000 og frá Stjórnlagaráði frá árinu 2011 þess efnis að í stjórnarskrá verði sett ákvæði um ævarandi þjóðareign á auðlindum.

Þetta er meðal þess sem fram kom í kynningu á skýrsludrögum Auðlindastefnunefndar á málþingi sem haldið var í dag á vegum nefndarinnar og forsætisráðuneytisins.

Kynningar frá málþinginu:


Dagskrá ráðstefnunnar í Hörpu

  9:00   Arnar Guðmundsson, form. Auðlindastefnunefndar kynnir skýrsluna
  9:30   Dr. Daði Már Kristófersson rýnir í tillögur nefndarinnar
10:00  Kaffihlé
10:15  Philip Daniel fjallar um leiðir við skattlagningu auðlinda
10:55  Fulltrúar þingflokka fjalla um málið í 3-5 mín hver.
             Eygló Harðardóttir Framsóknarflokki, Birgitta Jónsdóttir Hreyfingunni,
             Tryggvi Þór Herbertsson Sjálfstæðisflokki, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
             Samfylkingunni og Bergur Sigurðsson frkvstj. Þingflokks VG.
11:30  Spurningar og umræður

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum