Hoppa yfir valmynd
11. september 2001 Forsætisráðuneytið

Hryðjuverk í Bandaríkjunum

    Frétt nr.: 24/2001


    Yfirlýsing frá ríkisstjórn Íslands
    In English

    Ríkisstjórn Íslands lýsir yfir þungum harmi vegna þeirra hryllilegu hryðjuverka sem framin hafa verið gegn bandarísku þjóðinni í dag. Íslendingar hafa með skelfingu og hluttekningu fylgst með þessum óhugnanlegu árásum sem kostað hafa líf fjölda saklausra borgara.

    Ríkisstjórn Íslands fordæmir þennan huglausa verknað og vottar ríkisstjórn Bandaríkjanna og bandarísku þjóðinni dýpstu samúð.
Í Reykjavík, 11. september 2001.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum