Fundur forsætisráðherra með forseta Finnlands
Forsætisráðherra átti í dag fund með forseta Finnlands, en opinber heimsókn hans til Íslands hófst í gær. Fundurinn var haldinn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.
Forsætisráðherra og forseti ræddu um stöðu efnahagsmála á Íslandi og í Finnlandi, svo og á alþjóðavettvangi, en forseti Finnlands var fjármálaráðherra Finnlands eftir efnahagslægð þar í lok 9. áratugar síðustu aldar.
Einnig ræddu þeir um samstarf Íslands og Finnlands á ýmsum sviðum og kynnti forsætisráðherra þá auknu áherslu sem ríkisstjórn hans hyggst leggja á samstarf á norrænum vettvangi, einkum vestnorrænu starfi og því markmiði að Ísland verði leiðandi afl á norðurslóðum. Þar verði opnun siglingaleiða og áhersla á verkefni og uppbyggingu þeim tengd í forgrunni.
Forsætisráðherrahjónin bjóða finnsku forsetahjónunum til hádegisverðar í Þingvallabústaðnum í dag, en heimsókninni lýkur síðdegis.