Hoppa yfir valmynd
7. júní 2013 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra fundaði með formanni landsstjórnar Grænlands

Formaður landsstjórnar Grænlands og forsætisráðherra
Formaður landsstjórnar Grænlands og forsætisráðherra

Forsætisráðherra fundaði í morgun með Alequ Hammond, formanni landsstjórnar Grænlands, en hún er hér á landi í stuttri vinnuheimsókn.

Þau ræddu um tvíhliða samstarf Íslands og Grænlands og þær nýju áherslur sem ríkisstjórn hvors um sig hefðu lagt þegar þau tóku við embætti. Forsætisráðherra gerði grein fyrir aukinni áherslu ríkisstjórnarinnar á vest-norræna samvinnu og nýtingu þeirra tækifæra sem felast í breyttu umhverfi á norðurslóðum.  Mikilvægi samstarfs Íslands og Grænlands færi vaxandi, sérstaklega með hugmyndum um aukna vinnslu auðlinda úr jörðu og atvinnu- og þjónustumöguleika sem því tengjast.  

Ísland mun opna aðalræðisskrifstofu á Grænlandi síðar á árinu og þakkaði forsætisráðherra sérstaklega fyrir það góða samstarf sem verið hefur við Grænland við undirbúning þess, en um verður að ræða fyrstu erlendu sendiskrifstofuna á Grænlandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum