Hoppa yfir valmynd
14. júlí 2013 Forsætisráðuneytið

Kveðja til Anítu Hinriksdóttur heimsmeistara í 800 metra hlaupi kvenna

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hefur í dag sent svohljóðandi kveðju til Anítu Hinriksdóttur, sem í dag varð heimsmeistari í 800 metra hlaupi kvenna á heimsmeistaramóti 17 ára og yngri sem haldið er í Donetsk í Úkraínu:

"Fyrir hönd íslensku þjóðarinnar óska ég þér hjartanlega til hamingju með einstakan árangur. Heimsmeistaratitill þinn, vonandi sá fyrsti af mörgum, sýnir hversu miklum árangri er hægt að ná með einbeittum vilja og þrotlausri vinnu að settu marki. Njóttu stundarinnar sem best. Við erum ákaflega stolt af þér.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra."

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum