Hoppa yfir valmynd
2. ágúst 2013 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherrahjón heiðursgestir á Íslendingahátíðum í Gimli og Mountain

Dagana 2.-6. ágúst heimsækja Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og eiginkona hans, Anna Sigurlaug Pálsdóttir, Íslendingaslóðir í Kanada og Bandaríkjunum. Ráðherrahjónin verða heiðursgestir á Íslendingahátíðum, sem haldnar verða í Gimli í Manitoba og Mountain í Norður-Dakóta, og taka þar þátt í hátíðarhöldum. Einnig munu ráðherrahjónin verða viðstödd ýmsa menningarviðburði og heimsækja staði sem tengjast vesturförunum. Þá mun forsætisráðherra eiga fund með Greg Selinger, forsætisráðherra Manitoba.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum