Hoppa yfir valmynd
28. júní 2013 Forsætisráðuneytið

Jafnréttissjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

Jafnréttissjóður
Jafnréttissjóður

Starfræktur er sérstakur rannsóknarsjóður, Jafnréttissjóður. Tilgangur hans er að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis.

Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki úr Jafnréttissjóði. Í samræmi við hlutverk sjóðsins verða veittir styrkir til rannsókna sem tengjast jafnréttismálum.

Gert er ráð fyrir að sjóðurinn hafi 10 milljónir króna til ráðstöfunar fyrir hvert starfsár og að styrkir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm.

Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Ekki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið.

Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna hér á vefnum. Enn fremur má nálgast eyðublöð á skrifstofu ráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg (sími 545 8400, netfang [email protected]).

Umsóknarfrestur er til 18. ágúst 2013 og verður úthlutað úr sjóðnum á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október 2013. Umsóknir til Jafnréttissjóðs skal senda forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, 150 Reykjavík.

Jafnréttissjóður starfar samkvæmt reglum nr. 513/2006, um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum