Hoppa yfir valmynd
14. ágúst 2013 Forsætisráðuneytið

Ábendingar til hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar

!

Á vef forsætisráðuneytisins hefur verið komið upp svæði þar sem almenningi er boðið að koma á framfæri hugmyndum og ábendingum til hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar um hluti sem betur mega fara í rekstri ríkisins. Einnig er hægt að senda hugmyndir og ábendingar til hópsins á netfangið [email protected].

Hagræðingarhópurinn starfar undir stjórn Ásmundar Einars Daðasonar, alþm., og í honum sitja auk hans Guðlaugur Þór Þórðarson, alþm., Vigdís Hauksdóttir, alþm. og Unnur Brá Konráðsdóttir, alþm..

Markmiðið er að hagræðingarhópurinn leggi fram tillögur sem miði að því að auka framleiðni í rekstri ríkisins umtalsvert. 

Sjá nánar í erindisbréfi hagræðingarhópsins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum