Nýr formaður skipaður fyrir úrskurðarnefnd um upplýsingamál
Trausta Fannari Valssyni hefur að eigin ósk verið veitt lausn frá stöðu formanns úrskurðarnefndar um upplýsingamál, frá 30. september 2013. Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, hefur verið skipaður formaður nefndarinnar frá þeim degi og til 18. nóvember 2015.