Hoppa yfir valmynd
25. október 2013 Forsætisráðuneytið

Varaforsætisráðherra Kína heimsækir Ísland 

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra mun á morgun, laugardag, eiga fund með Ma Kai varaforsætisráðherra Kína, sem hingað kemur til lands í boði forsætisráðherra. Mun fundurinn eiga sér stað í Þjóðmenningarhúsinu kl. 18.00. Á meðal fundarefna verða viðskiptamál, orkumál, málefni norðurslóða, mannréttindamál og alþjóðamál. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra mun ennfremur sitja fundinn auk embættismanna. 

Á sunnudag mun varaforsætisráðherrann kynna sér jarðvarma og skoða sig um á Suðurlandi. Ráðherrann fer af landi brott á mánudag.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum