Hoppa yfir valmynd
13. desember 2013 Forsætisráðuneytið

Leggur til breytingu á gjöldum af póstsendingum

Starfshópur vegna samkeppnisstöðu póstverslunar hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni. Helstu tillögur starfshópsins eru þær að lagt er til að erlendum fyrirtækjum, sem selja vörur og póstleggja til Íslands, verði heimilt að innheimta og skila virðisaukaskatti og aðflutningsgjöldum af þeim vörum sem seldar eru til landsins. Einnig er lagt til að aðflutningsgjöld verði felld niður af hrað- og póstsendingum með þeim hætti að gjöld verði felld niður ef verðmæti sendingar er að fob-verðmæti undir kr. 2000. Fulltrúi SVÞ gerir fyrirvara við þessa tillögu og telur að verið sé að mismuna innlendri verslun enn frekar gagnvart erlendri verslun með niðurfellingu á ýmsum aðflutningsgjöldum. 

Starf hópsins byggði á ályktun Alþingis frá 11. október 2012 en þar var forsætisráðherra falið að setja á fót slíkan hóp sem ætlað var gera tillögur að lagabreytingum og öðrum ráðstöfunum til að skapa póstverslun viðeigandi samkeppnisstöðu til hagsbóta fyrir neytendur og atvinnufyrirtæki. Starfshópurinn var skipaður í byrjun apríl 2013. Hópurinn hélt 16 fundi og fékk fjölmarga gesti á sinn fund. 

Skýrslu starfshópsins er að finna í heild sinni hér á vef ráðuneytisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum