Hoppa yfir valmynd
19. maí 2014 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra þakkar starfsmönnum Ríkisskattstjóra

Forsætisráðherra óskar ríkisskattstjóra til hamingju með vel unnið verk
Forsætisráðherra óskar ríkisskattstjóra til hamingju með vel unnið verk

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra heimsótti í dag embætti ríkisskattstjóra og kynnti sér móttöku umsókna vegna Leiðréttingarinnar hjá embættinu. „Það er aðdáunarvert hvernig ríkisskattstjóri hefur staðið að málum og starfsfólk hér hefur unnið kraftaverk við undirbúningsvinnuna, ekki hvað síst undanfarna daga,“ sagði forsætisráðherra um leið og hann færði starfsmönnum ríkisskattstjóra blóm í tilefni dagsins.

Óhætt er að segja að mikið hafi gengið á hjá embættinu í dag en opnað var fyrir umsóknir um leiðréttingu verðtryggðra húsnæðislána á vef ríkisskattstjóra, leidretting.is, í gær. Opið hafði verið fyrir umsóknir í einn sólarhring þegar forsætisráðherra kíkti í heimsókn. Þá þegar lágu fyrir ríflega 20 þúsund staðfestar umsóknir. Athygli vakti að umsóknir höfðu borist frá tæplega 80 þjóðlöndum þegar þar var komið sögu, flestar frá Noregi en um 700 Íslendingar búsettir þar höfðu óskað eftir leiðréttingu á verðtryggðum húsnæðisskuldum sínum.

Hér er um að ræða eina flóknustu aðgerð af þessu tagi sem ráðist hefur verið í hjá ríkisskattstjóra. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri kynnti forsætisráðherra undirbúning og framkvæmd Leiðréttingarinnar og þá vinnu sem tekur nú við. Umsóknartímabilið rennur út 1. september nk. og fyrstu niðurstöður leiðréttingarinnar munu liggja fyrir í haust.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum