Hoppa yfir valmynd
3. júlí 2014 Forsætisráðuneytið

Stýrihópur um framkvæmd EES-samningsins

Forsætisráðherra hefur í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar í Evrópumálum sem samþykkt var í ríkisstjórn 11. mars sl. skipað stýrihóp um framkvæmd EES-samningsins.

Staða mála nú er sú að alls eru hátt í 700 lagagerðir sem bíða upptöku í EES-samninginn. Á sama tíma er halli á innleiðingu tilskipana 3,1% og fjöldi óinnleiddra reglugerða með mesta móti þótt tekist hafi að bæta nokkuð úr að undanförnu.

Ein af þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin samþykkti að grípa til var að setja á fót stýrihóp um framkvæmd EES-samningsins undir forystu forsætisráðuneytis með þátttöku fulltrúa ráðuneyta og skrifstofu Alþingis. Markmiðið er að greina flöskuhálsa í ferli EES-mála frá upphafi þeirra á vettvangi Evrópusambandsins til loka við innleiðingu í landsrétt.  Hópnum er ætlað að skila tillögum til úrbóta varðandi einstaka þætti ferlisins. Þannig sé framkvæmd EES-samningsins sem skilvirkust og um leið svigrúm skapað til að beina kröftum í auknum mæli að snemmgreiningu löggjafar á vettvangi EES og forgangsröðun þannig að gripið sé til samræmdra viðbragða í stærri hagsmunamálum.

Í stýrihópnum eiga sæti Páll Þórhallsson skrifstofustjóri forsætisráðuneytinu, sem gegnir formennsku í hópnum, Erla Sigríður Gestsdóttir sérfræðingur, tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Hafdís Ólafsdóttir skrifstofustjóri, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneyti, Þorgeir Ólafsson sérfræðingur, tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sigurbergur Björnsson skrifstofustjóri, tilnefndur af innanríkisráðuneyti, Kjartan Ingvarsson sérfræðingur, tilnefndur af umhverfis- og auðlindaráðuneyti, Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir skrifstofustjóri, tilnefnd af velferðarráðuneyti, Bryndís Kjartansdóttir skrifstofustjóri, tilnefnd af utanríkisráðuneyti, og Sesselja Sigurðurdóttir nefndarritari utanríkismálanefndar (EES-mál), tilnefnd af skrifstofu Alþingis.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum