Forsætisráðherra fundar með fulltrúum almannavarna
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra fundaði í morgun með fulltrúum ríkislögreglustjóra og almannavarna. Til fundar við forsætisráðherra komu Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og sérfræðingar almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Þar á meðal voru Björn Oddsson jarðeðlisfræðingur og verkefnastjóri hjá ríkislögreglustjóra, Víðir Reynisson hjá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra og Jón Bjartmarz yfirlögregluþjónn. Þeir kynntu ráðherra þróun mála síðustu sólarhringa og þær viðbragðsáætlanir sem eru í gangi vegna hugsanlegra umbrota í Bárðarbungu. Forsætisráðuneytið er í góðu sambandi við almannavarnir og mun fylgjast náið með framvindu málsins.