Hoppa yfir valmynd
23. júní 1999 Forsætisráðuneytið

Skýrsla úrskurðarnefndar um upplýsingamál 1998

Skýrsla úrskurðarnefndar um upplýsingamál 1998

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál starfar samkvæmt V. kafla upplýsingalaga nr. 50/1996 við að leysa úr ágreiningsmálum um aðgang að upplýsingum hjá stjórnvöldum á kærustigi. Nefndinni er skipað til hliðar við hið almenna stjórnkerfi ríkis og sveitarfélaga og er þannig sjálfstæð og óháð öðrum stjórnvöldum í störfum sínum. Úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir og verður því ekki skotið annað innan stjórnsýslunnar. Af því leiðir að úrskurðir nefndarinnar hafa fordæmisgildi fyrir önnur stjórnvöld, en það stuðlar jafnframt að auknu samræmi í framkvæmd laganna. Af þeim sökum er í 19. gr. upplýsingalaga mælt svo fyrir að úrskurðir nefndarinnar skuli gefnir út árlega.

Í samræmi við síðastgreint ákvæði hefur forsætisráðuneytið gefið út skýrslu úrskurðarnefndar um upplýsingamál fyrir árið 1998. Skýrslan geymir endurrit allra úrskurða nefndarinnar frá síðasta ári, 34 talsins, auk tveggja úrlausna, sem segja má að hafi almennt gildi, enda þótt þær séu ekki í úrskurðarformi. Til að auðvelda notkun skýrslunnar er í efnisyfirliti og á undan hverju máli að finna yfirlit um þau atriði sem á hefur reynt hverju sinni. Auk þess er í atriðisorðaskrá vísað til viðeigandi úrskurða í þessari og síðustu ársskýrslu nefndarinnar. Þá er birt töluleg samantekt og samanburður á fjölda mála hjá nefndinni á fyrstu tveimur starfsárum hennar og úrslit kæruatriða í úrskurðum hennar.

Í forsætisráðuneytinu, 29. apríl 1999

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum