Hoppa yfir valmynd
16. september 2014 Forsætisráðuneytið

Sigurður Líndal lætur af störfum í stjórnarskrárnefnd

Sigurði færðar þakkir
Sigurði færðar þakkir

Sigurður Líndal prófessor emeritus hefur að eigin ósk fengið lausn frá störfum sínum fyrir stjórnarskrárnefnd, vegna aldurs og anna við önnur störf. Sigurður var skipaður formaður nefndarinnar í nóvember 2013. 

Ákvörðun Sigurðar kemur á þeim skilum í starfi nefndarinnar að fyrsta áfangaskýrsla liggur fyrir og vinna við þá næstu fram undan. 

Þess má vænta að nýr formaður verði skipaður innan tíðar, enda er starfstími nefndarinnar allt til loka kjörtímabilsins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum