Hoppa yfir valmynd
13. mars 2000 Forsætisráðuneytið

Auglýsing um framboð og kjör forseta Íslands

Forsætisráðuneytið hefur sent Lögbirtingablaðinu til birtingar svolátandi auglýsingu um framboð og kjör forseta Íslands:

Kjör forseta Íslands skal fara fram laugardaginn 24. júní 2000.

Framboðum til forsetakjörs skal skila til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, ásamt samþykki forsetaefnis, nægilegri tölu meðmælenda og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu kosningarbærir, eigi síðar en fimm vikum fyrir kjördag.

Forsetaefni skal hafa meðmæli minnst 1500 kosningarbærra manna, en mest 3000, er skiptist þannig eftir landsfjórðungum:

Úr Sunnlendingafjórðungi (þ.e. Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Austur-Eyjafjallahreppur, Vestur-Eyjafjallahreppur, Austur-Landeyjahreppur, Vestur-Landeyjahreppur, Fljótshlíðarhreppur, Hvolhreppur, Rangárvallahreppur, Ásahreppur, Djúpárhreppur, Holta- og Landsveit, Vestmannaeyjabær, Gaulverjabæjarhreppur, Sveitarfélagið Árborg, Hraungerðishreppur, Villingaholtshreppur, Skeiðahreppur, Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Biskupstungnahreppur, Laugardalshreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Þingvallahreppur, Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus, Grindavíkurkaupstaður, Sandgerðisbær, Gerðahreppur, Reykjanesbær, Vatnsleysustrandarhreppur, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær, Bessastaðahreppur, Kópavogsbær, Reykjavík, Seltjarnarneskaupstaður, Mosfellsbær, Kjósarhreppur, Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarstrandarhreppur, Skilmannahreppur, Innri-Akraneshreppur, Leirár- og Melahreppur, Skorradalshreppur og Borgarfjarðarsveit) séu minnst 1.168 meðmælendur, en mest 2.336.

Úr Vestfirðingafjórðungi (þ.e. Hvítársíðuhreppur, Borgarbyggð, Kolbeinsstaðahreppur, Eyja- og Miklaholtshreppur, Snæfellsbær, Eyrarsveit, Helgafellssveit, Stykkishólmsbær, Dalabyggð, Saurbæjarhreppur, Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Hólmavíkurhreppur, Kirkjubólshreppur, Broddaneshreppur og Bæjar-hreppur) séu minnst 79 meðmælendur, en mest 159.

Úr Norðlendingafjórðungi (þ.e. Húnaþing vestra, Áshreppur, Sveinsstaðahreppur, Torfalækjarhreppur, Blönduósbær, Svínavatnshreppur, Bólstaðarhlíðarhreppur, Engihlíðarhreppur, Vindhælishreppur, Höfðahreppur, Skagahreppur, Sveitarfélagið Skagafjörður, Akrahreppur, Siglufjarðarkaupstaður, Grímseyjarhreppur, Ólafsfjarðarkaupstaður, Dalvíkurbyggð, Hríseyjarhreppur, Arnarneshreppur, Skriðuhreppur, Öxnadalshreppur, Glæsibæjarhreppur, Akureyrarkaupstaður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Hálshreppur, Ljósavatnshreppur, Bárðdælahreppur, Skútustaðahreppur, Reykdælahreppur, Aðaldælahreppur, Reykjahreppur, Húsavíkurkaupstaður og Tjörneshreppur) séu minnst 183 meðmælendur, en mest 365.

Úr Austfirðingafjórðungi (þ.e. Kelduneshreppur, Öxarfjarðarhreppur, Raufarhafnarhreppur, Svalbarðshreppur, Þórshafnarhreppur, Skeggjastaðahreppur, Vopnafjarðarhreppur, Norður-Hérað, Fljótsdalshreppur, Fellahreppur, Austur-Hérað, Borgarfjarðarhreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður, Fjarðabyggð, Mjóafjarðarhreppur, Fáskrúðsfjarðarhreppur, Búðahreppur, Stöðvarhreppur, Breiðdalshreppur, Djúpavogshreppur og Sveitarfélagið Hornafjörður) séu minnst 70 meðmælendur, en mest 140.

Auglýsingin er gefin út samkvæmt lögum nr. 36/1945, um framboð og kjör forseta Íslands, sbr. lög nr. 39/1963, lög nr. 6/1984 og lög nr. 43/1996.

Í Reykjavík, 13. mars 2000.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum